Að ná árangri í málörvun

Að ná árangri í málörvun

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Kort

mán 15. feb 2027 09:00

Bústaðu viðburðinn!

Lærðu að greina málþroskafrávik og beita árangursríkri íhlutun í daglegu starfi í leik- og grunnskóla.

Að loknu námskeiði læra þátttakendur að meta málþroskafrávik, þekkja mismunandi málþætti og verða færari í að veita ungum börnum viðeigandi íhlutun, meta árangur og nota árangursríkar aðferðir.

Farið verður yfir skilgreiningar á færniþáttum/málþáttum sem einkenna þroska barna. Bent verður á hagnýtar lausnir til þess að mæta þörfum barna sem sýna frávik á þessum þáttum. Leitast verður við að gefa þátttakendum verkfæri og hugmyndir til þess að nota í daglegum aðstæðum í skólanum. Sérstaklega verður fjallað um skipulag í leikskólum, uppbyggingu málörvunarhópa og undirbúning fyrir lestur eftir skráningu með TRAS og skimunum á málþroska. Sýnt hefur verið fram á að með því að beita aðferðum snemmtækrar íhlutunar er hægt að draga úr og jafnvel koma í veg fyrir námsörðugleika. Með því að skrá málþroska ungra barna í daglegum aðstæðum, skima fyrir málþroskafrávikum og skilgreina málþroskafrávik aukum við möguleika á því að vinna markvisst að því að styrkja málþroska út frá viðeigandi færniþáttum. Einnig hefur það áhrif á valdeflingu fyrir starfsfólk leikskólans að fá betri yfirsýn yfir verkfæri og hugmyndir til þess að styrkja mál- og félagsþroska ungra barna með viðeigandi íhlutun.

Námskeiðið er ætlað leikskólakennurum, grunnskólakennurum, þroskaþjálfum, talmeinafræðingum, sálfræðingum og sérkennurum. Einnig er námskeiðið opið öðru starfsfólki leikskólans sem hefur reynslu af því að vinna með málörvun í leikskóla og í daglegum aðstæðum.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Málþróun ungra barna og helstu frávik.
  • Tvítyngi/fjöltyngi.
  • Áhrif málþroskafrávika á félagsfærni og lestur – samvinnu fagstétta.
  • Færniþætti/málþætti með áherslu á viðeigandi íhlutun.
  • Uppbyggingu málörvunartíma og skipulag í leikskólaumhverfi.
  • Spennandi málörvunarefni, spil, forrit og bækur – aðferðir sem skila árangri til að mæta þörfum barna með frávik í málþroska.

Ávinningur þinn:

  • Að þekkja eðlilega málþróun og helstu frávik. Gera sér betur grein fyrir þörfum barna sem eru að læra íslensku sem annað tungumál.
  • Að geta beitt hagnýtum aðferðum til að mæta þörfum ungra barna með frávik í færniþáttum/málþáttum með viðeigandi íhlutun.
  • Að skipuleggja málörvunarhópa.
  • Að öðlast meiri færni í að skipuleggja vinnu inni á mismunandi deildum leikskólans með þarfir allra barna í huga.
  • Þekkja og geta nýtt sér hugmyndir, aðferðir og verkfæri til þess að stuðla að hámarksárangri í námi ungra barna.

Aðrar upplýsingar

Mælt er með bókinni: Snemmtæk íhlutun í hnotskurn – verkfærakista hugmynda (Ásthildur Bj. Snorradóttir og Bergrós Ólafsdóttir, 2021).