Dagur íslenska fjárhundsins
Um flytjanda
Íslenskir fjárhundar heimsækja Árbæjarsafn mánudaginn 18. júlí á degi íslenska fjárhundsins. Hundarnir ásamt eigendum þeirra verða á safninu frá kl. 13-17 og heilsa upp á gesti. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda. Aðeins hundar sem taka þátt í kynningunni munu fá aðgang að safninu. Í haga er jafnframt að finna kindur og lömb og landnámshænurnar vappa frjálsar um safnið og er helst að finna í kringum lokkandi ilminn í Dillonshúsi þar sem verður heitt á könnunni og heimilislegar veitingar. Safnið er opið frá kl. 10 –17 en hundana má hitta milli 13-17. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni, eitt safn á fimm frábærum stöðum. /// Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir sléttir malarstígar en sums staðar eru hellulagðar stéttir. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar, leiðir 12 og 24, stoppa á Höfðabakka, rétt við safnið. Leið 16 stoppar við Streng (5 mín. gangur) og leið 5 við Rofabæ (6 mín. gangur).
Viðburðir framundan
-
-
Dagur Íslenska fjárhundsins - Icelandic Sheepdog dayLýtingsstaðir, 561lau. 18.07.2026 13:00Skoða viðburð