Dagur Íslenska fjárhundsins - Icelandic Sheepdog day

Dagur Íslenska fjárhundsins - Icelandic Sheepdog day

Lýtingsstaðir, 561, Kort

lau. 18.07.2026 13:00

🐕🇮🇸

Dagur íslenska fjárhundsins verður haldinn hátíðlegur að vanda og í samstarfi við Byggðasafn Skagfirðinga.

Við bjóðum eigendum og íslensku fjárhundunum þeirra heim að Lýtingsstöðum til að hittast og spjalla, skoða sögusetrið og torfhúsin á staðnum. Það verður heitt á könnunni.

Það verður frítt inn fyrir alla á Sögusetrið Íslenska fjárhundsins þennan dag.

Síðan færum við okkur í Glaumbæ, Byggðasafn Skagfirðinga.

Watson var mikill Íslandsvinur og eigum við honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn hefur varðveist.

Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins".

Í tilefni dagsins er frítt á safnið í Glaumbæ fyrir eigendur íslenskra fjárhunda í fylgd með hundunum. Á kaffihúsi safnsins í Áshúsi er í boði góðgæti fyrir menn og hunda.

Flytjendur

  • Sögusetur Íslenska fjárhundsins
    Sögusetur Íslenska fjárhundsins

    Sögusetur íslenska fjárhundsins er vettvangur til að varðveita sögu þjóðarhundsins. Opið maí-september kl. 09:00 til 18:00 og eftir samkomulagi.

  • Dagur íslenska fjárhundsins
    Dagur íslenska fjárhundsins
    Íslenskir fjárhundar heimsækja Árbæjarsafn mánudaginn 18. júlí á degi íslenska fjárhundsins. Hundarnir ásamt eigendum þeirra verða á safninu frá kl. 13-17 og heilsa upp á gesti. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda. Aðeins hundar sem taka þátt í kynningunni munu fá aðgang að safninu. Í haga er jafnframt að finna kindur og lömb og landnámshænurnar vappa frjálsar um safnið og er helst að finna í kringum lokkandi ilminn í Dillonshúsi þar sem verður heitt á könnunni og heimilislegar veitingar. Safnið er opið frá kl. 10 –17 en hundana má hitta milli 13-17. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni, eitt safn á fimm frábærum stöðum. /// Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir sléttir malarstígar en sums staðar eru hellulagðar stéttir. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar, leiðir 12 og 24, stoppa á Höfðabakka, rétt við safnið. Leið 16 stoppar við Streng (5 mín. gangur) og leið 5 við Rofabæ (6 mín. gangur).