Verið velkomin á Árbæjarsafn sunnudagana 14. júní, 26. júlí og 23. ágúst kl. 13–16.
Þar gefst einstakt tækifæri til að kynnast fyrri tímum í lifandi umhverfi. Gestir fá að kynnast fjölbreyttum störfum og daglegu lífi fólks hér áður fyrr. Harmonikkuleikur mun óma um safnsvæðið en þar ganga einnig landnámshænur lausar.
Guðsþjónusta verður í litlu safnkirkjunni kl. 14. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir altari.
Guðsþjónusta
Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort
sun. 26.07.2026 13:00
Dillonshús Café verður opið og býður upp á ljúffengar veitingar í notalegu umhverfi.
Öll velkomin!
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.
Öll bílastæði eru ókeypis.
Öll velkomin!
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.
Öll bílastæði eru ókeypis.
Flytjendur
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Fyrirlestur um sundurgreiningu manngerða og hópa.
-
Sunnudagur til sæluSunnudagur til sælu er yfirskrift sunnudagsins 26. júní á Árbæjarsafni en þá býðst gestum að upplifa ferðalag aftur í tímann. Dagskráin hefst kl.13 og stendur til kl. 16. Starfsfólk klæðist fatnaði sem tíðkaðist á 19. öld og sinnir ýmsum störfum sem nauðsynleg eru á hverjum bæ. Húsfreyjan í Árbæ býður upp á nýbakaðar lummur og á baðstofuloftinu situr kona við tóskap og í safnhúsi sem nefnist Miðhús er prentari að störfum. Á safninu er fjölbreytt úrval af útileikföngum sem krökkum býðst að nota að vild, svo sem húla-hringir, snú-snú, kubb og stultur. Á gamaldags róluvelli eru rólur, vegasalt og sandkassi með leikföngum. Við mælum með að yngsta kynslóðin heimsæki sýninguna „Komdu að leika“ í safnhúsi sem kallast Landakot en þar er mikill fjöldi leikfanga frá ýmsum tímum sem krökkum er frjálst að leika sér með. Á safninu má einnig finna landnámshænurnar og í haga eru hestar, kindur og lömb. í Dillonshúsi er heitt á könnunni og heimabakað góðgæti. Hillur Krambúðarinnar eru stútfullar af sælgæti og í safnbúðinni fæst gómsætur ís. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Safnið er opið í allt sumar á milli kl. 10-17. Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni: Eitt safn á fimm frábærum stöðum.