Sunnudagur til sælu
Um flytjanda
Sunnudagur til sælu er yfirskrift sunnudagsins 26. júní á Árbæjarsafni en þá býðst gestum að upplifa ferðalag aftur í tímann. Dagskráin hefst kl.13 og stendur til kl. 16. Starfsfólk klæðist fatnaði sem tíðkaðist á 19. öld og sinnir ýmsum störfum sem nauðsynleg eru á hverjum bæ. Húsfreyjan í Árbæ býður upp á nýbakaðar lummur og á baðstofuloftinu situr kona við tóskap og í safnhúsi sem nefnist Miðhús er prentari að störfum. Á safninu er fjölbreytt úrval af útileikföngum sem krökkum býðst að nota að vild, svo sem húla-hringir, snú-snú, kubb og stultur. Á gamaldags róluvelli eru rólur, vegasalt og sandkassi með leikföngum. Við mælum með að yngsta kynslóðin heimsæki sýninguna „Komdu að leika“ í safnhúsi sem kallast Landakot en þar er mikill fjöldi leikfanga frá ýmsum tímum sem krökkum er frjálst að leika sér með. Á safninu má einnig finna landnámshænurnar og í haga eru hestar, kindur og lömb. í Dillonshúsi er heitt á könnunni og heimabakað góðgæti. Hillur Krambúðarinnar eru stútfullar af sælgæti og í safnbúðinni fæst gómsætur ís. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Safnið er opið í allt sumar á milli kl. 10-17. Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni: Eitt safn á fimm frábærum stöðum.