Orgelsumar í Hallgrímskirkju / Orgelmaraþon í Hallgrímskirkju á Menningarnótt

Orgelsumar í Hallgrímskirkju / Orgelmaraþon í Hallgrímskirkju á Menningarnótt

Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 14:00

Orgelsumar í Hallgrímskirkju
Orgelmaraþon í Hallgrímskirkju á Menningarnótt
Laugardagur 22. ágúst kl. 14-18
Reykjavíkurmaraþon hefur verið hlaupið á Reykjavíkurgötum á Menningarnótt að morgni laugardags frá 1984 en í Hallgrímskirkju er Orgelmaraþon.
Organistar: Björn Steinar Sólbergsson, Steinar Logi Helgason, Matthías Harðarson, Pétur Nói Stefánsson, Elísabet Þórðardóttir, Magnús Ragnarsson, Eyþór Franzson Wechner og Christian Barthen.
Prógram fyrir börnin milli kl. 14-16 í Hallgrímskirkju
Í Hallgrímskirkju á Menningarnótt verða Hallgrímskirkju-kórónur í boði sem listakonan Jana María Guðmundsdóttir hannaði. Það verður hægt að lita kórónurnar í öllum regnbogans litum.
Börnin geta einnig tekið þátt í því að skapa sameiginlegt listaverk.
Ókeypis aðgangur og öll hjartanlega velkomin
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR Á MENNINGARNÓTT

Flytjendur