The Factory

The Factory

Gamla síldarverksmiðjan í Djúpavík á Ströndum, Djúpavík 6, 524 Árneshreppur Kort

sun. 28.06.2026 10:30

The Factory er árleg listasýning sem haldin er í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík. Á sýningunni er ólíkum miðlum samtímalistar fléttað saman við liðna tíma og þannig verður til vettvangur fyrir fjölbreytilega list og óvænt skynhrif. Árið 2026 er þema sýningarinnar tengsl og verður m.a. unnið með staðbundna list í beinum tengslum við sjálfa verksmiðjubygginguna. Hvað gerist þegar sýningar rýmið er ekki einungis skel utan um listina heldur tekur raunverulega þátt í sköpunarferlinu? Þemað leiðir einnig hugann að andstæðum tengsla: firringu og aftengingu. Á sýningunni verður kafað í heim skáldskapar, drauma, arfleifðar, fortíðarþrár og framtíðar.