Gamla síldarverksmiðjan í Djúpavík á Ströndum

Djúpavík 6, 524 Árneshreppur

Um staðinn

„Árið 1934 var hafist handa við byggingu síldarverksmiðju á Djúpavík og aðeins rúmu ári síðar, 7. júlí 1935, var farið að framleiða þar bæði síldarmjöl og lýsi. Veiðin var mjög góð og verksmiðjan malaði gull. Þegar síldarverksmiðjan var fullbyggð var hún langstærsta steinsteypta bygging á Íslandi. Enn þann dag í dag er hún gríðarstór, 90 metra löng á 3 hæðum.“ „En tímarnir breyttust. Aflinn náði hámarki á svæðinu sumarið 1944, en eftir það minnkaði síldarstofninn hratt. Eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir til nýrra notkunarmöguleika var síldarverksmiðjunni endanlega lokað árið 1954.“ Í dag er Sögusýning Djúpavíkur í vélasal síldarverksmiðjunnar sem segir frá tímum síldarævintýranna.

Vefir:

Viðburðir framundan