Innkaupapokinn
Borgarleikhúsið | Litli Salur, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort
fim. 17.09.2026 20:00
Innkaupapokinn
Kriðpleir og Elísabet
Jökulsdóttir
Frumsýnt 28. febrúar
Salur: Litla svið
Leiksýningin Innkaupapokinn er vefur sem leikhópurinn Kriðpleir spinnur umhverfis veröld
Elísabetar Jökulsdóttur og leikrit hennar „Mundu töfrana“. Í verki Elísabetar, sem hún skrifaði
fyrst árið 1992, leita Ella og Trúðurinn bróðir hennar að „Barninu“ til þess að færa því tár
svo það geti syrgt pabba sinn og haldið áfram eigin tilveru. Handritið hefur verið hálfgert
olnbogabarn í íslensku leikhúsi í rúmlega 30 ár og aldrei ratað á svið þrátt fyrir þrotlausar
tilraunir höfundar og stöðug endurskrif. En í kjölfar þess að Ragnar Ísleifur Bragason,
meðlimur í leikhópnum Kriðpleir frétti af þrautargöngu Elísabetar hefur ný von kviknað því
Ragnar vill óður og uppvægur koma Elísabetu, frænku sinni, til bjargar með hjálp félaga sinna úr leikhópnum. Sumir gætu sagt að þetta væri eins og að fara úr öskunni í eldinn. Það er að minnsta kosti ekki vandræðalaust að lífga við gamlan galdur …
Leikhópurinn Kriðpleir er einn af virkari hópum íslensku sviðslistasenunnar. Hópurinn
hefur samið um tug verka fyrir leiksvið og útvarp, sýnt þau innanlands sem utan og hlotið
fjölmargar
tilnefningar til Grímunnar.
Höfundur: Elísabet Jökulsdóttir
og leikhópurinn
Leikstjórn: Kriðpleir
Leikmynd og búningar: Ragnheiður
Maísól Sturludóttir og Sigrún Hlín
Sigurðardóttir
Tónlist: Benni Hemm Hemm
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Dramatúrg og sviðshreyfingar: Snæfríður Sól Gunnarsdóttir.
Þátttakendur:
Árni Vilhjálmsson
Friðgeir Einarsson
Ragnar Ísleifur Bragason
Ragnheiður Maísól Sturludóttir
Saga Garðarsdóttir
Sigrún Hlín Sigurðardóttir
Flytjendur
-
Kriðpleir
Leikhópurinn Kriðpleir er einn af virkari hópum íslensku sviðslistasenunnar.
-
Elísabet JökulsdóttirLjóðskáld og upplestur
-
Benni Hemm HemmEinstaklega sviðsframkoma, dansar á mörkum þess að vera band eða kór.
-
Ragnar Ísleifur Bragason
Leikstjórn
-
Friðgeir EinarssonRithöfundurinn Friðgeir Einarsson velur verk úr Artóteki Borgarbókasafnsins, skrifar um þau texta og er hvorutveggja sett upp á sýningu. Sýningin opnar fimmtudaginn 31. mars og stendur til 30. apríl. SamSuða er yfirskrift sýningarraðar í Borgarbókasafninu Kringlunni. SamSuða er stefnumót skapandi einstaklinga þar sem skáld, velja verk úr Artóteki Borgarbókasafns og skrifa um þau stuttan texta. Verkin geta verið eftir einn og sama listamanninn eða blanda af verkum eftir ýmsa. Úr þessu verður hálfgerð SamSuða sem sett er upp á sýningu. Í Artótekinu er til leigu og sölu myndlist eftir íslenska listamenn, sem allir eru félagsmenn í Sambandi íslenskra myndlistamanna. Markmiðið með Artótekinu er að kynna notendum Borgarbókasafns og öðrum íslenska samtímalist og gefa þeim kost á að leigja eða eignast listaverk á einfaldan hátt. Nánari upplýsingar veita: Guðríður Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is s. 691 2946 Friðgeir Einarsson freinarsson@gmail.com s. 690 8609
-
Ragnheiður Maísól Sturludóttir
Leikmynd og búningar
-
Sigrún Hlín Sigurðardóttir
Leikmynd og búningar