Hljómskálagarður 0
101 Reykjavík
„Hljómskálagarðurinn við Suðurtjörn er með stærri almenningsgörðum í Reykjavík. Hann á nafn sitt að rekja til Hljómskálans sem reis 1923 og hefur löngum verið æfingastaður reykvískra lúðrasveita. (...) Hljómskálagarðurinn var búinn til á uppfyllingu eftir að mýrarflói við suðurenda Tjarnarinnar var þurrkaður og fylltur.“ Trjárækt hófst í garðinum 1914 en stærsti trjálundurinn í dag er birkilundurinn austan Bjarkargötu. Hann hefur síðan stækkað smátt og smátt til suðurs samhliða aukinni garð- og trjárækt.